
Brúðkaupsmyndir
Jón Páll - ljósmyndari

Sýnishorn úr nokkrum brúðkaupsmyndatökum

Myndapakkar

Bakvið tjöldin!
Baksviðs hjá Kusse Soka and Selamawit.
Vídeó af myndatöku hjá Jóni Páli við Jökulsárlón, í fjörunni við Lónið og í mosagrónu Eldhrauni. Kusse hefur búið á Íslandi í tæp 20 ár en Selamawit er nýkomin. Þau eru bæði frá Eþíópíu.
Ljósmyndari: Jón Páll Vilhelmsson
Aðstoð við myndatöku og vídeó: Zsuzsa Darab.
Stephanie Tang og Pierre-Charles við Hraunfossa.
Myndband af myndatöku við Hraunfossa og í Víðgelmi, einum af stærstu hraunhellum í heimi. Þetta var 19. desember og eiginlega vonskuveður. Fengum samt alveg æðislegar myndir. Stephanie er frá Belgíu og Pierre frá Frakklandi.
Ljósmyndari: Jón Páll Vilhelmsson
Aðstoð við myndatöku og vídeó: Zsuzsa Darab.

Hamingjusamir viðskiptavinir
Við förum varla fram á meir...

Agnès og róbert
"Við fengum myndabókina í síðustu viku. Hún er mjög flott og vakti góðar minningar. Takk fyrir okkur!
Með kveðju,
Agnès"

Kristín og Egill
"Sæll.
Myndirnar koma vel út og erum við ánægð með þær.
Takk aftur fyrir okkur :)
Kveðja
Egill og Kristín."

hilmar og sigurveig
"Við erum himinlifandi yfir öllum þessum dásamlegu myndum sem þú náðir á brúðkaupsdaginn okkar! :0)
Ótrúlegur árangur að ná hreint frábærum myndum af okkur og svo með börnunum og öllum fjölskyldutegundunum, systkinum, ömmum og öfum og bara öllu! Algjör snilld!
Þúsund þakkir!! Þú færð hrós dagsins!! :0)"

hilmar og kristín
"Við vorum að fá bókina í hendur og viljum þakka kærlega fyrir frábæra vinnu!
Við erum MJÖG ánægð. Kaflinn um undirbúningin þar sem þú tókst myndir heima hjá okkur kom einstaklega skemmtilega á óvart og fór langt fram úr annars ágætum væntingum. Einnig mjög flottar myndirnar úr skógarferðinni og þegar þetta er sett svona saman í bók þá er þetta einstök samantekt á einstökum degi. Mælum svo sannarlega með þessu format'i."